Ég hlakka svo til - jólakveðja Þjóðleikhússins og Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Автор: Þjóðleikhúsið
Загружено: 2020-12-16
Просмотров: 6505
Jólakveðja Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Þjóðleikhússins.
Þjóðleikhúsið og Sinfóníuhljómsveit Íslands tóku höndum saman og hljóðrituðu nýja útgáfu af laginu Ég hlakka svo til, í útsetningu Hrafnkels Orra Egilssonar sellóleikara undir stjórn Bjarna Frímanns Bjarnasonar hljómsveitarstjóra. Auk þess var tekið upp glæsilegt myndband þar sem listamenn beggja stofnana koma fram. Í lok óvenjulegs og krefjandi árs lítur listafólk yfir farinn veg og horfir björtum augum fram á veginn. Sviðslistafólk landsins hefur ekki getað sinnt sínum hefðbundnu störfum, tónleikasalir og leikhús hafa að mestu verið lokuð frá því um miðjan marsmánuð. Myndbandið er því eins konar saknaðar-, þakkar- og tilhlökkunarkveðja á þessum tímamótum þegar hillir undir lok baráttunnar. Upptökur fóru fram í Hörpu og Þjóðleikhúsinu á síðustu vikum þar sem listamennirnir komu einir eða í litlum hópum og tóku sinn hluta upp í samræmi við gildandi takmarkanir. Verkefnið er alfarið unnið af starfsfólki þessara stofnana.
Доступные форматы для скачивания:
Скачать видео mp4
-
Информация по загрузке: