Fóstbræður HD: Drekinn
Автор: Fóstbræður HD
Загружено: 2025-06-01
Просмотров: 639
Skets úr fyrsta þætti í fyrstu seríu: Drekinn
Fóstbræður S01E01 - Drekinn
--
Yfirmaður segir starfsmanni að hann sé „rekinn“. Starfsmaðurinn misskilur og heldur að hann hafi verið kallaður „dreki“. Í kaffistofunni segir hann frá þessu, en kemur þá í ljós að yfirmaðurinn hefur alltaf sagt „rekinn“ — ekki „drekinn“. Starfsmennirnir halda áfram að vinna, ruglaðir en sáttir.
-
A: Já, mér þykir mjög leiðinlegt að þurfa að segja þér þetta, en í ljósi undangenginna atburða og samdráttar í fyrirtækinu, þá er bara komið að þér núna.
A: Mér þykir þetta mjög leiðinlegt. En... en þú ert, þú ert drekinn.
B: Er ég hvað?
A: Segi það, þú ert drekinn.
B: Já... já. Og... og hvað þýðir það?
A: Það þýðir ekkert annað en það að þú ert rekin.
B: Já, já, já. Jæja, já. Ég þakka þér bara kærlega fyrir eitthvað.
A: Já, þakka þér sömuleiðis.
C: Jæja, hvað sagði hann?
B: Þetta var nú eitthvað furðulegt, maður.
C: Hvað, hann er nú bara eitthvað skrítinn, þessi maður. Hvað sagði hann?
B: Hann sagði ég væri dreki.
C: Sagði hann það?
B: Já. "Þú ert drekinn," sagði hann. Hann kallaði mig dreka.
C: Furðulegt, maður. Nákvæmlega það sama og hann kallaði mig í síðustu viku. Förum að vinna.
B: Já.
Доступные форматы для скачивания:
Скачать видео mp4
-
Информация по загрузке: