Fóstbræður HD: Fáránleg gleraugu
Автор: Fóstbræður HD
Загружено: 2025-06-23
Просмотров: 331
Skets úr fyrsta þætti í annari seríu af Fóstbræðrum
Fóstbræður S02E01 - Fáránleg gleraugu
-
Afbragðs söluhæfni gleraugnasala tryggir honum sölu á helstu gleraugunum hans.
-
Góðan daginn.
Góðan daginn.
Get ég aðstoðað?
Já, ég var að hugsa um að fá mér gleraugu.
Mhm, ein mjög fín fyrir þig. Sjáðu.
Ah, þetta gengur nú ekki. Þetta er nú eiginlega hálfáránlegt svona.
Nei, það finnst mér ekki. Þau eru mjög fín. Þetta er viðurkennd umgjörð.
Já, mér líst ekki á það. Ég myndi vilja fá einhver önnur bara. Geturðu sýnt mér?
Já. Sjáðu. Hvað með þessi hérna?
Já, þetta eru sömu gleraugun og þú sýndir mér áðan.
Nei, nei, nei, nei.
Jú, þetta eru nákvæmlega sömu gleraugun og þú sýndir mér áðan.
Nei, nei, nei, þessi hér eru miklu dekkri, sko. Ætlarðu að fá þau? Gerðu það.
Nei, þetta er nú alveg fáránlegt, sko.
Getur það verið að það sért þú sem ert fáránleg?
Hvað áttu við?
Nei, mér finnst þú bara svona fullfljót að dæma, sko.
Getur verið að þú þurfir aðeins að fríska upp á útlitið, aðeins að "losen up"?
Hvað áttu við? Ég vil bara fá venjuleg gleraugu. Ekki þessi forljótu gleraugu. Þau eru bara ljót, sko.
Já, já. Mhm. Já, já. Ég er bara búinn að vera í þessum gluggabransa í tíu ár. Hvað veit ég um gleraugu? Ekki neitt. Já, já. Þú vilt bara einhver venjuleg gleraugu, segirðu?
Já, já, já.
Hvað segirðu um þessi?
Heyrðu, þetta er nú fáránlegt, sko. Þetta eru sömu gleraugun.
Já. Ætlarðu að fá þau?
Nei.
En líst þér vel á þau?
Nei, mér líst illa á þau.
Þú sérð illa.
Já.
Já, þá sérðu ekkert hvort þau fara þér vel eða ekki.
Viltu kannski annan lit?
Nei, ég vil ekki annan lit.
Þér finnast gleraugun...?
Heyrðu, hættu þessu! Hvað er að þér, maður?
Hérna. Taktu þau. Þú mátt fá þau ókeypis.
Ókeypis?
Já, hérna, taktu þau. Gerðu það.
Jæja, ókeypis. Allt í lagi.
Jæja, hvað segir hún?
Æ, ég veit það ekki. Ég held að enginn vilji kaupa þessi gleraugu mín. Það hefur enginn smekk fyrir þessu. Þetta er allt svo ljótt og ömurlegt hjá mér.
Ég veit það nú ekki.
Já. Þau voru bara að fara út núna rétt áðan.
Í alvöru?
Það er slegist um þau.
Доступные форматы для скачивания:
Скачать видео mp4
-
Информация по загрузке: